IMF kastar björgunarhringnum.

IMF lánar okkur 2 milljarða dollara.  Á næstu 2 árum þurfum við 6 milljarða svo treysta þarf því að hin Norðurlöndin láni okkur þessar fjórar sem upp á vantar.  Við erum gjörsamlega háð nágrönnum okkar og frændum (þökk sé frjálshyggjunni).

Blaðamannafundirnir í dag sýndu svo sem ekki fram á neitt nýtt, gjaldþrot og erfiðleikar framundan en vinnslan er hafin og það glittir í ljósið.  

Formennirnir voru trúverðugir hvor fyrir sinn hatt.  Geir H. Haarde styður sinn mann í Seðlabankanum og er ekki tilbúinn í Evrópusambandsumræður að svo stöddu. Ingibjörg Sólrún föst á sínu vill nýja stjórn í Seðlabankann og tilbúin í Evrópusamandið strax.  Hún hefur líklega náð sér í nokkur atkvæði þarna.

Seðlabankastjórnin sættir sig líklega við stjórnartauma IMF skárra væri það nú.

Áróður VG um að kröfur IMF yrðu örugglega brútal og óásættanlegar voru ekki á rökum reistar. 


mbl.is Óska formlega eftir aðstoð IMF
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband