Áfram Steingrímur!

Undirrituð hefur fram að þessu ekki verið stuðningsmaður Steingríms J. en í kvöld breyttist þetta viðhorf þegar ég hlustaði á viðræður hans við hinn nýja formann Framsóknarflokksins.  Þarna var sleginn nýr tónn í íslenska stjórnmálaumræðu sem byggðist á frekju og yfirgangi þess unga manns sem sennilega hefur með þessu eyðilagt sinn stutta stjórnmálaferil.  Við Íslendingar þurfum núna á allt öðru að halda en pólítískum vanstilltum æsingamönnum.  

Það vita allir að við Íslendingar eigum í mjög miklum erfiðleikum og eigum ekki marga góða kosti það er því ekki drengilegt við þessar aðstæður að æsa upp í þjóðfélaginu óánægju og hatur á þeim sem leggja sig alla fram um að vinna okkur gagn.  Við verðum að vona að svona spjátrungar takist ekki sitt lítilssilgda ætlunarverk að reyna að æsa upp fólk sem á í erfiðleikum.
mbl.is Blekkingar, heimska og hótanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þér er jú víst ætlað að vera góð við þá sem minna mega sín í starfi þínu, en að verja þennan málstað... greyið þú.

Freyr (IP-tala skráð) 8.6.2009 kl. 21:12

2 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Þegar "neyðarlögin" voru sett í október 2008 af þáverandi stjórnvöldum var bókfest að !innistæður" íslendinga" væru tryggðar...umfram innistæður Hollendinga og innistæður Breta!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 8.6.2009 kl. 21:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband