6.6.2007 | 10:14
Óþægileg framhaldsmynd.
Stöð 2.sýndi,í gær og fyrrakvöld ömurlega bíómynd sem fjallaði um mansal. Það þarf varla að taka það fram að ofbeldið sem framið var, var einkum gegn ungum stúlkum og börnum sem var rænt og svipt frelsi svo hægt væri að uppfylla kröfur markaðarins um kynlífsþræla. Aðferðirnar sem notaðaðar voru til að brjóta stúlkurnar niður voru sýnd vel og rækilega. Ofbeldið í myndinni var það ógeðslegasta sem ég hef séð, mjög raunverulegt.
Eftir á að hyggja hafði ég gott af því að vera minnt á að þennan hrylling. Það er bara svo þægilegt að hlífa sjálfri sér og líta undan. Eitt er víst að hafi ég verið á móti svokölluðum súludansstöðum eða einhverju öðru sem hefur snertifleti við vændi er ég enn harðari andstæðingur núna. Er það ekki þriðji aðilinn sem hirðir af stúlkunum peninginn fyrir þessa vinnu? Er súludans ekki kynlífsþjónusta,vændi? Þeir sem kaupa vændi eru að viðhalda glæpamennskunni og þær sem vinna nálægt þessum ,,bransa velja það ekki nema vegna fátæktar. Hana þarf að uppræta.
Talið er að 800 þúsund manns séu seld mansali árlega. Talan er örugglega miklu hærri.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:13 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.