Röng ákvörðun.

Undirrituð er M12 áskrifandi og verð því miður að lýsa því yfir að ég er algjörlega mótfallin því að Steingrímur Ólafsson skuli vera ráðin sem fréttastjóri á Stöð 2.  Þessi maður er umdeildur í þjóðfélaginu og hefur verið aðstoðarmaður Halldórs Ásgrímssonar, Árna Magnússonar  og fl.,   Hvað er í gangi hjá þessari góðu sjónvarpsstöð?  Fólk sem er búið að negla sig á þennan hátt við ákveðin stjórnmálaflokk getur á engan hátt verið hlutlaus fréttastjóri. Getur verið að alvöru fréttamennska sé á undanhaldið á stöðinni og stefnt sé að sýndarmennsku og léttmeti. Er alveg viss um að þessi þróun er þeim ekki að skapi sem stutt hafa Stöð 2 í gegnum árin.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband