24.1.2009 | 16:25
Ræðan hans Guðmundar Andra var snilld.
Frábær penni hann Guðmundur Andri. Hann naut sín vel á Austurvelli. Sérstaklega gaman að heyra skáldleg fínpússuð ummæli hans um sofandahátt Fjármálaeftirlitisins, ósvífna þaulsetu Davíð Oddssonar og háðsleg ummæli hans um Hannes Hómstein ,,grillpinna" og dýrkanda frálshyggjunnar sem allir vita nú að er rótin af öllum þessum hörmungum sem nú dynja yfir þjóðina.
Baðst afsökunar á ummælum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Hvernig rökstyður þú að frjálshyggjan sé rótin af öllum hörmungum sen nú dynja yfir? Ég sé ekki alveg samhengið.
Palli (IP-tala skráð) 24.1.2009 kl. 16:37
Þórdís mín!
Kannastu nokkuð við einhverja dýrkendur gamla socialismans eða kommadýrkendur ?
Pápi hans Guðmundar Andra var sagður hafa " barist til fátæktar" !( Var sonur auðmanns!)
Fjölskylduvinur - þegar Guðmundur Andri var smápolli - var skáldið Jóhannes úr Kötlum. Maður sá orti.:
"Sovét Ísland - óskalandið,
hvenær kemur þú ?" !!
Mætti ég þá frékar biðja um " örlitla" frjálshyggju !!
Kalli Sveinss (IP-tala skráð) 24.1.2009 kl. 16:39
Helvíti eru menn farnir að tengja skemmtilega, jafnvel Joseph McCarthy hefði verið stoltur af þessari tengingu. Þar sem að fölskyldurvinur hjá PABBA Guðmundar orti fyrir margt löngu síðan lofræðu um gamla Sovét, þá gefur auga leið að Guðmundur er stórhættulegur kommúnisti, snilld.
En ræðan hjá Guðmundi var hins vegar mjög góð, alltaf gaman að heyra vel máli farna menn tala, ekki síst þegar maður er sammála þeim.
Þorsteinn R. Þórsson (IP-tala skráð) 24.1.2009 kl. 18:34
Kalli minn. Vertu bara frjálshyggjusinni því getur sennilega engin breytt úr því hrunið nú gerði það ekki.
Þórdís Bára Hannesdóttir, 24.1.2009 kl. 19:05
Þórdís Bára Hannesdóttir, 25.1.2009 kl. 10:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.