3.5.2008 | 17:54
Sönn list?
Sönn list vekur fólk til umhugsunar, hreyfir við fólki. Ef þetta er rétt skilgreining hjá mér þá er Þórarinn Jónsson mikill listamaður. Hitt er annað mál að mig langar ekki að vakna upp á nóttunni við bænakall hvorki kristilegt eða muslimskt. Til þess sef ég orðið alltof laust. Listin á daginn fyrir mig. Alltí lagi uppúr 7:30.
Kvartað til lögreglu yfir bænakalli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ekki fyrir mjög mörgum árum var ég með flokk byggingarmanna í vinnu og þurftu þeir að nota hamra við mótauppslátt. Það lá á að ljúka verki og komið fram um klukkan 10 um kvöldið, en þá mætti lögreglan á svæðið og óskaði eftir því að mennirnir hættu vinnunni vegna ónæðis og kvartana nágranna. Það hljóta að vera til einhver lög og reglugerðir um svona lagað! Varla þarf hann Allah hinn mikli að vera að láta að hæla sér hér upp á Íslandi að næturlagi, eða þjáist hann af einhverri minnimáttarkennd og athyglissýki? Eða er svo ástatt um listamanninn, ef til vill? (bænakallið er að mestu lofsöngur um Allah og hann Mó)
Ljónshjarta I (IP-tala skráð) 3.5.2008 kl. 18:20
Já ég man eftir þér. Takk fyrir að bjóða mér inn :)
Þórdís Bára Hannesdóttir, 3.5.2008 kl. 20:44
Fínn pistill Þórdís og ég er sammála þessu hjá þér. En stundum hefur maður gott af því að vakna... snemma!
Bestu kveðjur,
Hlynur Hallsson, 4.5.2008 kl. 00:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.